Sýningarlok | Minningabankinn
31. maí er síðasti dagur sýningar Minningbankans.
Hér gefst tækifæri til að kynnast áður ósögðum ævisögubrotum borgarbúa. Á bókasafninu er stöðugt flæði bóka, nýjar koma inn og aðrar eru afskrifaðar. Hvers konar ævisögur eiga heima á hillum bókasafnsins og í hvaða formi væri best að miðla slíkum sögum? Myndi þig langa til að miðla broti úr þinni ævisögu?
Stundum er eins og höfuðið sé ferðataska full af minningum. Hvernig væri að viðra þessar uppsöfnuðu minningar og jafnvel sjá þær í nýju ljósi? Eitt augnablik gæti orðið að heilli sögu. Lyktin sem var alltaf heima hjá ömmu er kannski efniviður í gamansögu eða hversdagslegan hrylling.
Í vetur óx bókverkasafn notenda um ósögð ævisögubrot í formi myndasagna. Þátttakendur í Minningabankanum mættu með minningar sínar og gerðu tilraunir með texta, myndir og einfalt bókband. Lóa Hjálmtýsdóttir miðlaði til þátttakenda frásagnatækni sem brúar bil og sameinar eiginleika rit- og myndlistar og myndasöguformsins. Vann hún með rithöfundunum Auði Jónsdóttur, Evu Rún Snorradóttur, Kamillu Einarsdóttur og Natöshu S. sem deildu með þátttakendum hvernig þær vinna með minningar, drauma og gleymsku í sínum skáldskap.
Sýningin er mitt á milli ævisögu- og myndasögudeildar á fimmtu hæð í Grófinni.
Öll velkomin og enginn aðgangseyrir
Frekari upplýsingar
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is