
Um þennan viðburð
Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir
Sýningarleiðsögn | Hvernig ertu?
Fimmtudagur 25. ágúst 2022
Svavar Pétur Eysteinsson, einnig þekktur undir listamannsnafninu Prins Póló, verður með leiðsögn um einkasýningu sína Hvernig ertu? og segir eflaust einnig sögur af bernskubrekum úr Breiðholtinu.
Á sýningunni blandar Svavar saman eigin tónverkum, myndlist og ljósmyndum, en í verkum sínum sækir Prinsinn oft innblástur í "sjoppulegan" hversdagsleikann, með litríkri upphafningu og húmor að leiðarljósi.
Hvernig ertu? var opnuð á neðri hæð Borgarbókasafnsins Gerðubergi við glimrandi góðar undirtektir laugardaginn 28. maí síðastliðinn og hefur vakið verðskuldaða athygli, en sýningin stendur yfir til 28. ágúst.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170