
Um þennan viðburð
Sýning | Ungir grafískir hönnuðir
Útskriftarsýning nemenda í grafískri hönnun við Borgarholtsskóla er vorboðinn ljúfi á Borgarbókasafninu í Spönginni!
Um námið segir, á vefsíðu skólans: "Þjálfun í hugmynda- og skissuvinnu og nauðsynlegri tækni til að útfæra hugmyndir og fullvinna verk fyrir prent- og skjámiðla. Áhersla á þekkingu og færni í ljósmyndun, myndvinnslu, umbroti, vefsíðuhönnun, auglýsingahönnun, mörkun og leturfræði. Fræðilegir áfangar gefa yfirlit yfir sögu, inntak og lykilhugtök grafískrar hönnunar."
Nemendurnir sem útskrifast nú í vor og eiga verk á sýningunni eru: Andri Haukur Vilhelmsson, Ari Jakobsson, Arthúr Rós Saifa Pálsson, Árni Björn Þórisson, Felix Gústafsson, Finnbjörn Helgi Guðjónsson, Ína S. Stefánsdóttir, Ladylene Ýr Atladóttir, Óskar Bjarmi Markússon og Regína Lind Magnúsdóttir.
Sýninguna má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim 10-18, fös 11-18 og lau 11-16.
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is