
Um þennan viðburð
Sýning nemenda Waldorfsskólans í Lækjarbotnum
Á sýningunni eru munir unnir í tré og textíl ásamt tvívíðum myndum. Verkin eru eftir nemendur í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum.
Starf skólans byggir á waldorfuppeldis- og kennslufræði þar sem mikil áhersla er lögð á að stuðla að alhliða þroska nemandans. Uppeldisfræðin hvílir á tveimur meginstoðum. Annars vegar viðhorfum til mannsins og þeirri sýn á veru og eðli mannsins sem birtist í mannspeki Rudolf Steiner og hins vegar þeim hugmyndum sem hann setti fram um félagslega uppbyggingu samfélagsins.
Jöfn áhersla er lögð á vitsmunalegan, tilfinningalegan og líkamlegan þroska nemandans. Rík áhersla er á listræna og verklega nálgun í allri kennslu. Leitast er við að ná fram lifandi áhuga nemandans á viðfangsefnunum og koma til móts við þarfir og kröfur hans sem einstaklings. Í Waldorfskólanum Lækjarbotnum teljum við staðsetningu okkar afgerandi og mikilvægan þátt í því uppeldisstarfi sem fer fram. Nemendum gefst kostur á að komast í nána snertingu við náttúruna, að upplifa náttúruöflin í „blíðu og stríðu“ og lifa með hrynjandi árstíðanna. Náttúran og náttúruupplifanir tengjast skólastarfinu á margan hátt.
Leikskólinn
Í leikskólanum sköpum við heimilislegt, traust umhverfi fyrir börnin, umhverfi sem hlífir þeim við ytra áreiti og síbylju. Notaðir eru hlýlegir og mildir litir, húsgögn, leikföng og annar búnaður eru úr náttúrulegum efnivið. Sérstaða leikskólans er það umhverfi sem hann er stadddur í og er það óþrjótandi uppspretta fyrir leiki og efnivið sem notaður er við ýmis tækifæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Jónína Óskarsdóttir
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is