Sýning | Nele Brönner
Nele Brönner er rit- og myndhöfundur frá Berlín. Hún dvelur nú í Gröndalshúsi í boði Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO og Goethe stofnunar í Kaupmannahöfn. Í tilefni þess sýnir hún myndverk úr barnabókum sínum í Hringnum á 2. hæð. Sjá opnunartíma safnsins...
Nele Brönner er barnabókahöfundur frá Berlín en fædd og uppalin í Marburg. Hún lærði myndlist við Listaháskólann í Berlín (Universität der Künste) og einbeitir sér í list sinni að myndabókum fyrir börn sem rit- og myndhöfundur og einnig að myndasögum sem myndhöfundur. Hún hlaut Serafina verðlaunin 2015 og 2019 fékk hún hin virtu Stiftung Buchkunst verðlaun í flokki barnabóka fyrir bókina Begel, der Egel.
Meðal bóka Nele má nefna Frosch Will Auch (2020), Zitronenkind (2020) sem einnig hefur komið út á ensku sem Lemonchild, Begel, der Egel (2018), Das Tigerei (2018) og bækurnar Das Monströse og Affenfalle frá 2015.
Hér í Reykjavík teiknar Nele og skrifar í Gröndalshúsi, fyrrum heimili rithöfundarins og myndlistarmannsins Benedikts Gröndals. Fyrstu dagana dvaldi hún þar í sóttkví eins og lesa má um í bloggi á vefnum hennar www.nelebroenner.com þar sem einnig má kynnast verkum hennar nánar.
Goethe stofnun í Kaupmannahöfn hefur boðið þýskum höfundum til nokkurra vikna dvalar í Reykjavík um árabil og hefur Bókmenntaborgin Reykjavík tekið á móti þessum gestum og kynnt þeim íslenskt bókmenntalíf og staðið fyrir viðburðum með þeim.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Viðarsdóttir, verkefnastjóri | Reykjavík bókmenntaborg UNESCO
kristin.vidarsdottir@reykjavik.is