Sýning | Litli prinsinn verður að myndasögu
Bókatorgið, 1. hæð Grófinni
Á næsta ári verða 80 ár síðan bókin um Litla prinsinn eftir Antoine de Saint Exupéry kom fyrst út í apríl 1946. Af þessu tilefni gefur Froskur Útgáfa út myndasögu á íslensku, sem byggð er á þessari sígildu sögu. Með útgáfunni gefst nýjum lesendum tækifæri á að nálgast söguna á alveg nýjan máta, en myndasagan er teiknuð af einum fremsta myndasöguteiknara Frakklands, Joann Sfar. Við skyggnumst inn í heim Sfar á þessari fallegu sýningu þar sem myndir úr bókinni verða til sýnis.
Sagan um Litla prinsinn er þekkt um víða veröld og fjallar fyrst og fremst um vináttu. Vinátta er þema sýningarinnar og hvetjum við sérstaklega nemendur grunnskóla og framhaldsskóla til að heimsækja sýninguna, og nota tækifærið til að skoða vináttuna að vinasambönd.
Nánari upplýsingar:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is