Liðnir viðburðir
Svavar Knútur spilar og spjallar
Laugardagur 29. maí 2021
Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð bæði fyrir frumsamda tónlist og fyrir túlkun sína á sígildum íslenskum sönglögum. Hann hefur vakið athygli fyrir vald sitt á samspili söngs og hljóðfæris – aðalsmerki trúbadorsins – sem og fyrir skemmtilega sagnamennsku milli laga. Einlægni og hlýja ráða ríkjum í tónlist Svavars Knúts, sem þó er krydduð með húmor inn á milli. Hann hefur ferðast víða um heim með tónlist sína og notið mikillar velgengni í Evrópu sem og heima fyrir.
Tónleikarnir eru haldnir með styrk frá Hverfissjóði Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar veitir:
Justyna Irena Wilczynska
justyna.irena.wilczynska@reykjavik.is