Sumarútgáfan með Sunnu Dís
Sumarútgáfan með Sunnu Dís

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir

Sumarútgáfan með Sunnu Dís

Fimmtudagur 27. ágúst 2020

Skráning er á alla viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.

Sjá nánar hér.

Sumarið er tíminn – og þá ekki síst tíminn til að lesa!

Sumarútgáfa ársins bauð upp á allt frá æsispennandi glæpasögum til ljóðabálka og alls kyns yndislesturs. Sunna Dís Másdóttir fær til sín þrjá höfunda og þýðanda sem allir áttu bækur í sumarútgáfunni í spjall og upplestur á Borgarbókasafninu í Sólheimum, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17. 

Linda Vilhjálmsdóttir gaf í sumar út ljóðabókina Kyrralífsmyndir. Ljóðin orti Linda á tímum kófsins í vetur og vor, þegar allt breyttist og „kunnuglegir hlutir urðu framandi, eðlileg samskipti lögðust nánast af og óttinn náði undirtökum,“ eins og segir á vef Forlagsins. 

Systurnar Steinunn G. Helgadóttir og Helga S. Helgadóttir sendu frá sér smásagnasafnið Hótel Aníta Ekberg. Það er kófið ekki heldur langt undan, því sögurnar fjalla allar um fólk sem verður innlyksa á hóteli við Trevi-gosbrunninn í Róm á tímum kórónuveirunnar. 

Tinna Ásgeirsdóttir þýddi fjölskyldusöguna Ættarfylgjuna eftir Ninu Wähä, en þar segir af örlögum Toimi-fjölskyldunnar sem býr í Tornedalnum á nyrstu landamærum Finnlands og Svíþjóðar. 

Athugið að skráning er nauðsynleg á viðburðinn og er hámarksfjöldi fimmtán manns. Skráninguna má finna hér að neðan.