STOFAN | Orð um ímyndaða framtíð
AIVAG býður þér að skrifa framtíðina eins og þú vilt sjá hana. Meðlimir AIVAG (Artist in Iceland Visa Action Group) safna framtíðarhugmyndum í textaformi sem sett verða saman í hefti (e. zine).
Þetta er tímabundinn staður fyrir ímyndunaraflið. Hér skrifum við framtíðina sem okkur dreymir um. Í hvers konar heimi viljum við vera? Við deilum reynslu og áskorunum sem listamenn búa við og skrifum saman raunveruleika þar sem réttindi listafólks eru virt.
"Orð um ímyndaða framtíð " með AIVAG er hluti af verkefninu Stofan | A Public Living Room. Rýmið er staðsett á 1. hæð í Grófinni og er opið frá 19.-26. mars 2024.
Vinnustofa í framtíðarskrifum með meðlimum AIVAG verður fimmtudaginn 21. mars 2024 kl. 16:30
Einu sinni í mánuði er ný útgáfa af Stofu opnuð í takt við leiðandi stef verkefnisins - Share the Care. Stofan er tilraunaverkefni þar sem ólíkir samstarfsaðilar skapa styðjandi samfélagsrými sem þau vilja sjá á bókasafninu.
Frekari upplýsingar veitir:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is