Steinunn Sigurðardóttir | Tíminn á leiðinni
Við bjóðum ykkur velkomin á sannkallaða upplestrarhátíð til að fagna heiðursdoktorsnafnbót Steinunnar Sigurðardóttur og útgáfu nýrrar ljóðabókar hennar, Tíminn á leiðinni, sem er ellefta ljóðabók höfuðskáldsins.
Meginstef bókarinnar er tíminn sjálfur, ýmist gjöfull eða grimmur; kynslóðir sem koma og fara, árstíðir, upphaf og endalok – horft er bæði inn á við og út í heiminn, á náttúruna, lífið sjálft. Ljóðmálið er leikandi létt og hnitmiðað, myndir dregnar skýrum og oft óvæntum dráttum, kaldhæðni og djúp alvara vegast á í skörpum og kjarnmiklum ljóðum.
Dagskráin er einkar glæsileg en þar verður lesið upp úr nýju ljóðabókinni og öðrum verkum Steinunnar frá ýmsum tímum. Meðal lesara eru Þorleifur Hauksson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Júlía Margrét Einarsdóttir og Arnar Jónsson.
Laufléttar veitingar í boði. Hlökkum til að sjá þig!
Viðburðurinn er á vegum Forlagsins.