
Star Wars Klúbbur Spönginni
Um þennan viðburð
Tími
15:00 - 16:30
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Liðnir viðburðir
Star Wars I Klúbbur 9-12 ára
Miðvikudagur 28. september 2022
Klúbburinn er í boði í Borgarbókasafninu Spönginni fjórða miðvikudag hvers mánaðar, kl.15:00-16:30.
Fyrsti hittingur verður 28. september.
Ert þú Star Wars aðdáandi og hefur áhuga á öllu sem tengist Star Wars? Borgarbókasafnið Spönginni hefur stofnað klúbb fyrir Star Wars aðdáendur, 9-12 ára. Í klúbbnum koma aðdáendur Star Wars saman til að spjalla, teikna, föndra, horfa eða bara allt það sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera sem tengist Star Wars. Einnig verður boðið öðru hverju upp á skemmtilegar smiðjur.
Þátttaka er án endurgjalds en allir verða að skrá sig í klúbbana.
Opnað verður fyrir skráningu 25. ágúst fyrir haustönn 2022 á sumar.vala.is
Í söfnunum er veglegt safn af Star Wars bókum sem hægt er að fá að láni.
Börn og ungmenni undir 18 ára aldri fá frítt bókasafnskort.
Nánari upplýsingar:
Sigrún Antonsdóttir, sérfræðingur
sigrun.antonsdottir@reykjavik.is