Sögur - Bókaverðlaun barnanna | Tilnefningarhátíð
Okkur langar til þess að bjóða bókelskandi barnafjölskyldum og öðrum bókaormum í æsispennandi og fjöruga hátíð.
Við tilkynnum ásamt lestarhestinum honum Sleipni hvaða fimm íslenskar og fimm þýddar bækur börnin völdu sem skemmtilegustu, áhugaverðustu og bestu bækur síðasta árs. Þessar bækur komast áfram í kosningu KrakkaRÚV, Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem verður opnuð með hátíðlegri athöfn á þessari hátíð. Í framhaldinu munum við svo verðlauna 10 heppin börn sem tóku þátt í Bókaverðlaunum barnanna.
Úlfgrímur Valgeirsson frá sirkusnum Hringleik mun í lokin skemmta okkur og leika listir sínar á jafnvægisbretti.
Komið og fagnið með okkur!
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146