
Pinterest/Gabriella Holm
Um þennan viðburð
Tími
15:00 - 17:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir
Smiðja | Páskaperl
Fimmtudagur 30. mars 2023
Komdu í heimsókn í Smiðjuna og perlaðu páskaskreytingar með okkur!
Í tilefni páska verður boðið upp á sérstakt páskaperl fyrir alla fjölskylduna þar sem hægt verður að útbúa páskasegla á ísskápinn, páskaskraut til að hengja út í glugga og frístandandi páskaskraut.
Ekki þarf að eiga bókasafnskort, engrar reynslu krafist og engin skráning, bara mæta.
Börn og fullorðnir velkomin en börn yngri en 8 ára mæti í fylgd með fullorðnum.
Boðið er upp á opna aðstoðartíma í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal, 1. fimmtudag hvers mánaðar milli kl. 15:00-17:00.
ATH! þar sem skírdag ber upp á fyrsta fimmtudag aprílmánaðar var smiðjan færð aftur um viku og ber því upp síðasta fimmtudag marsmánaðar.
Nánari upplýsingar:
ulfarsa@borgarbokasafn.is