Liðnir viðburðir
Smásmiðja | Hönnun í teikniforriti fyrir þrívíddarprentara
Mánudagur 29. apríl 2024
Opnir aðstoðartímar í tónlistar- og myndvinnsluverinu í Grófinni.
Í tímunum sem kallast Smásmiðjur verður farið yfir ákveðin tækniatriði hverju sinni, sem tengist mynd-, tónlistar- eða hljóðvinnslu.
Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til klukkan 18:00.
Dagskrá:
29. apríl | Hönnun í þrívíddarteikniforriti fyrir þrívíddarprentara
6. maí | Að búa til takt í Figure tónlistarforritinu
13. maí | Að klippa saman vídeó – Grunnatriði í Final Cut Pro
27. maí | Að búa til takt í Logic Pro tónlistarforritinu
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur Tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100