Fatamarkaður
Fatamarkaður

Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

Skiptumst á fötum

Laugardagur 4. mars 2023

Verið velkomin á býttimarkað fyrir föt!  

Hér getur þú mætt, skilið eftir föt  og tekið með þér aðra flík í staðinn. Það sem einn hefur ekki lengur not fyrir getur verið algjör happafengur fyrir annan. Nú er upplagt tækifæri til að fara í gegnum skápa og skúffur því hér gefst kostur á að losa sig við föt og finna sér ný án þess að borga krónu. 

Reglurnar eru einfaldar:

• Þú kemur með nokkrar gersemar sem þú ert ekki að nota og tekur einungis þær flíkur sem þig langar í og getur notað.

• Það er ekkert hámark eða lágmark af flíkum sem má koma með og ekkert hámark eða lágmark af fötum sem má taka.

• Þátttaka er ókeypis

 

Viðuburðurinn á facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6175