Um þennan viðburð

Tími
12:00 - 13:00
Verð
Frítt
Liðnir viðburðir

Samtal um kosningar í Þýskalandi | Torgið

Fimmtudagur 16. september 2021

Framundan eru spennandi þingkosningarnar í Þýskalandi. Nú lýkur löngum valdatíma Angelu Merkel, kanslara Þýskalands til sextán ára. Hvað tekur við að loknum kosningadegi þann 26. september?

Auðunn Arnórsson stjórnmálafræðingur og Sabine Leskopf borgarfulltrúi munu velta stöðunni fyrir sér í opnu samtali á Torginu. Þau þekkja bæði vel til þýskra stjórnmála og spá í spilin með okkur.

Umræðu stýrir Sigurður ÓIafsson, stjórnmálafræðingur og framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.

Samtalið er skipulagt af Félagi stjórnmálafræðinga og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.

Fundurinn er öllum opinn og þátttaka ókeypis.

Viðburður á Facebook.

Upplýsingar um viðburðinn veitir:
Sigurður Ólafsson, sigurdurolafsson@gmail.com

Ef þú ert með hugmynd sem þig langar að ræða á bókasafninu, hafðu þá endilega samband.

Upplýsingar um opin samtöl á Torginu veitir:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjórn | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is