
Um þennan viðburð
Safnanótt | Þögult þrumustuð
Verið velkomin á Þögult þrumustuð á Safnanótt!
Svarthvítt og þögult kvikmyndaþema svífur yfir vötnum á Safnanótt í Grófinni og lofum við bæði dulúðlegri stemningu en líka þrumustuði.
• Spennandi flóttaleikur á vegum Reykjavík Escape þar sem þeir allra hugrökkustu þurfa að sýna mikla kænsku til að komast út. Ath að það er nauðsynlegt að skrá sig á staðnum, fyrstur kemur fyrstur fær.
• Grænskjá myndataka af þér með bakgrunni úr nokkrum velvöldum kvikmyndum. Hefur þig alltaf langað að leika í mynd eftir Steven Spielberg eða knúsa risaeðlu? Láttu það eftir þér!
• Sýning á þöglu mynd Chaplins Modern times. Þeir sem elska snjó og slyddu geta nú horft á meistaraverk Shakespears á veggnum gegnt Bókasafninu og tilvalið að taka með sér heitt kakó og stól.
• Halldór Logi Sigurðarson spilagúrú fær gesti með sér í stemningu kvikmyndarinnar The Werewolf og kennir spilið One Night Ultimate Werewolf, sem er stutt, einfalt og skemmtilegt spil fyrir 8 ára og eldri.
• Skuggaleikur með fingrum. Einfaldar leiðbeiningar á staðnum hvernig hægt er að breyta fingrunum okkar í kanínu, fugl, fiðrildi eða hvað sem er.
• Grímusmiðja í anda Charleston. Fallegar fjaðraskreyttar og dulúðugar grímur í boði fyrir þá sem vilja klæða sig upp á tyllidögum.
Einnig má búast við óvæntum uppákomun hér og þar um húsið, þar sem persónur úr söngleiknum Reimt mæta í fullum klæðum. Leikararnir eru úr leikfélagi Fjölbrautaskólans í Garðabæ, en Reimt og er nýr söngleikur eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um dagskrána á Safnanótt er að finna á heimasíðu Vetrarhátíðar.
Viðburður á Facebook / Info in English on Facebook
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir ; 8681851
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is