Safnanótt | Ljóðaslamm - Sviðið er þitt!
Verið velkomin í Grófina á Safnanótt 2024!
Dagskrá á milli 21:00-22:30
Ljóðaslamm | Sviðið er þitt!
Hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðslistar flytja frumsamin verkDansatriði | Hex, Kitri variation act3 og Paquita variation 2
Úrslit Ljóðaslamms tilkynnt. Vinningshafi endurflytur verk sitt
Flytjendur og titill atriðis:
- Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir - [nafn atriðis óákveðið]
- Stavroula Vayena - Echo
- Daníel Daníelsson - Það er hola undir parketinu mínu
- Ágúst Elí Ásgeirsson - Animestrákurinn
- María Thorlacius Yngvinsdóttir - Box
- Karina Dahl Sæternes - And I will try to believe it
- Sindri "Sparkle" Freyr - Er ég nógu sæt til að þú berjir mig
- Þór (Tóti) Wiium - Merktur
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs, þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist.
Dómnefnd: Steinunn Jónsdóttir (úr Reykjavíkurdætrum), Jón Magnús Arnarsson (vinningshafi Ljóðaslamms 2017) og Örvar Smárason (rithöfundur og meðlimur hljómsveitanna FM Belfast og MÚM).
Nemendur Klassíska listdansskólans sýna þrjú stutt dansverk:
Dansatriði | Hex (Nútímadansverk)
Danshöfundur: Camilo Aldazabal Valdes
Tónlist: O Vento Chama Seu Nome- Ninos Du Brasil
Dansarar: Camilla Fineza Árnadóttir, Dagný Debora Óskarsdóttir, Hrafndís Jóna Guðnýjardóttir og Ylfa Marín Nökkvadóttir.
Dansatriði | Kitri variation act3 úr Don Quixote (Klassískur balett sóló)
Danshöfundur: Marius Petipa
Tónlist: Ludwig Minkus
Dansari: Margrét Kristjánsdóttir
Dansatriði | Paquita variation 2 (Klassískur ballet sóló)
Danshöfundur: Joseph Mazilier
Tónlist: Ludwig Minkus
Dansari: Karen Lóa Árnadóttir
Allt um Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100