Rými fyrir höfunda | Töfrar duftsins eftir Svein Snorra Sveinsson
Töfrar duftsins er titillinn á nýútgefinni skáldsögu eftir Svein Snorra Sveinsson. Sagan er fantasía og vísindaskáldsaga sem hefst fyrir 10 þúsund árum í Vestur-Evrópu. Aðalsöguhetjan ber nafnið Sindros og hann tilheyrir ættbálki sem kallar sig Nútímafólkið. Sindros kemst í kynni við Baldar töfralækni Bláa fólksins. Hann varðveitir leyndardóm sem verður örlagavaldur í lífi Sindrosar.
Sindros tekst á hendur mikilvægt hlutverk og lesandinn fylgir honum í gegnum söguna þjóna þessu hlutverki sem enginn veit hvort hann getur uppfyllt. Frásögnin er vörðuð raunverulegum atburðum úr veraldarsögunni og þess vegna mætti segja að hún sé saga okkar allra.
Höfundur mun segja frá skáldsögunni, tilurð og efni og lesa upp. Öll velkomin!
Umsjón: Sveinn Snorri Sveinsson, sveinnsnorri@hotmail.com
Rými fyrir höfunda | Borgarbóksasafnið Grófinni
borgarbokasafn.is/rymi-fyrir-hofunda-borgarbokasafnid-grofinni