Um þennan viðburð
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir | Allskonar fjölskyldur
Árleg ráðstefna um skáldskap fyrir börn og unglinga í Gerðubergi. Gestum gefst tækifæri til að hlýða á fyrirlesara og taka þátt í umræðum um hlutverk og stöðu bókmennta fyrir börn og ungmenni í dag.
Í ár beinum við sjónum okkar að því hvernig margbreytileg fjölskyldutengsl birtast í barnabókmenntum. Hvað merkir það að vera fjölskylda og hvernig fjölskyldur sjáum við í barnabókum fyrr og nú? Fjölskyldur og tengsl verða til úr ólíkum manneskjum sem tengjast ástríkum, undarlegum, erfiðum, flóknum og fallegum böndum. Fjölskyldan er ein birtingarmynd á okkar nánustu samböndum sem geta jú verið allskonar.
Ráðstefnan er samstarfsverkefni Félags fagfólks á skólasöfnum, IBBY, SFS, Síung, Upplýsingar og Borgarbókasafnsins.
Dagskrá:
10:30-10:40 Eva Rún Þorgeirsdóttir, rithöfundur og fundarstjóri, setur ráðstefnuna
10:40-11:10 Brynhildur Björnsdóttir, bókmenntafræðingur og fjölmiðlakona
Hvar er mamma þín, Einar Áskell? - Um allar einsleitu og einstöku fjölskyldurnar í bókheimum
11:10-11:40 Gunnar Helgason, rithöfundur
Bannað að mismuna!
11:40 – 12:40 Hádegishlé
12:40-13:10 Sólveig Rós Másdóttir, foreldrafræðari og uppeldisráðgjafi
Endurspeglun regnbogans
13:10-13:40 Arndís Þórarinsdóttir, rithöfundur
Bækur sem er ekki hægt að hætta að lesa: Hávísindaleg rannsókn Arndísar og Ævars á lestrardraumum grunnskólanema
Ráðstefnan er ókeypis og opin öllum og verður einnig sýnd í beinu streymi á Facebook síðu Borgarbókasafnsins.
Nánari upplýsingar um árlegu barna- og unglingabókaráðstefnuna í Gerðubergi
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146