Um þennan viðburð

Tími
17:00
Verð
Frítt
Liðnir viðburðir

Opið samtal | Störf framtíðarinnar

Þriðjudagur 13. september 2022

Við bjóðum til samtals við Sendiherra Bretlands á Íslandi og barnabókahöfundinn Dr. Bryony Mathew.  Bryony hefur skrifað bækur sem beina sjónum stúlkna og barna að fjölbreyttum starfstækifærum þegar þau vaxa úr grasi. Margbreytileiki lífsins er þar leiðarljós en einnig að við þurfum öll að takast á við mótlæti og áskoranir í lífinu.

Í opnu samtali mun Bryony eiga samtal um hvernig hún sér atvinnumarkaðinn þróast í framtíðinni, hvar munum við vinna og hvernig getur bókasafnið leikið hlutverk í breyttum aðstæðum t.d. með aukinni fjarvinnu. Bryony mun einnig ræða það hvernig hún mun nálgast íslensk börn, ræða um Bretland og framtíðina með nýrri bók sendiráðsins Tæknitröll og íseldfjöll - frábær störf framtíðarinnar.

Öll velkomin, þátttaka ókeypis

Opið samtal á Facebook

Opið samtal, hvað er það? Umræðuvettvangur um málefni tengd réttindum, aðgengi og þátttöku í samfélaginu. Dagskráin í heild.

Frekari upplýsingar
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is