Opið samtal | Örugg rými verðandi mæðra
Hvernig hafa ólíkar aðstæður áhrif á skilningi okkar á öryggi og vernd? Við bjóðum í opið samtal um örugg rými verðandi mæðra með ljósmæðrum Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Í tilefni hins alþjóðlega baráttudags kvenna 8. mars þá skoðum við öryggi í tengslum við barneignarferlið og þekkingarmiðlun frá ljósmæðrum til verðandi mæðra. Er þörf á vitundarvakningu í þessum málaflokki og hvernig væri hægt að nýta almenningsrými eins og bókasafnið sem vettvang þekkingarmiðlunar til kvenna sem tilheyra ólíkum samfélagshópum? Öryggismál í tengslum við barneignarferlið og það að verða móðir er til umræðu í opnu samtal, sem öllum er velkomið að taka þátt í.
Öll velkomin!
Viðburður á Facebook
Ert þú með málefni sem þig langar að ræða á bókasafninu?
Hafðu samband. Við erum opin fyrir nýjum hugmyndum.
Frekari upplýsingar um vettvanginn Opið samtal:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is