
Um þennan viðburð
Námskeið | Sviðsetning sannleikans
Hefur þú frá einhverju að segja? Eru allar sögur áhugaverðar? Hver er munurinn á upplestri ritaðrar sögu og sögu sem þú leggur á minnið?
Í þessari ritsmiðju gefst þátttakendum færi á að móta frásögn byggða á eigin upplifun, undir leiðsögn Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, og Péturs Ármannssonar, leikstjóra og dramatúrgs. Lokaafraksturinn flytja þátttakendur svo á sviði, blaðlaust, fyrir áhorfendur.
Kannski leynist efniviður í gamalli dagbókarfærslu, kannski langar þig að segja frá einhverju sem breytti lífi þínu síðasta sumar. Kannski viltu tala um samband þitt við afa þinn. Sagan má fjalla um hvað sem er, eina skilyrðið er að hún sé sönn.
En hvað er svo sem sannleikur?
Smiðjan fer fram í Menningarhúsinu Gerðubergi
Mánudaginn 1. febrúar, frá 16:00-18:00
Miðvikudaginn 3. febrúar, frá 17:00 -19:00
Mánudaginn 8. febrúar, frá 16:00-18:00
Miðvikudaginn 10. febrúar, frá 17:00 -19:00
Námskeiðinu lýkur svo með lokakvöldi þar sem þátttakendur flytja sína sögu fyrir áhorfendur, föstudaginn 12. febrúar, en það verður tekið upp og klippt saman í hlaðvarpsþátt.
Fullbókað er í námskeiðið.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri bókmennta
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is