
Um þennan viðburð
Menningarstefna Reykjavíkurborgar: Metnaðarfullar aðgerðir eða innatóm orð?
Menningarstefna Reykjavíkur verður til umfjöllunar á áhugaverðu málþingi sem Háskólinn á Bifröst og Reykjavíkurborg standa sameiginlega að undir yfirskriftinni Metnaðarfullar aðgerðir eða innantóm orð?
Málþingið fer fram á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal og eru öll velkomin. Jafnframt verður streymt frá málþinginu FB-síðum Háskólans í Reykjavík og Borgarbókasafnsins.
SJÁ STREYMIÐ FRÁ MÁLÞINGINU HÉR
Eftirtalin taka til máls:
Dr. Njörður Sigurjónsson, prófessor og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst og nefnist erindi hans Af þátttöku, aðgengi, inngildingu og fjölbreytni. Leitin að sælubletti menningarstjórnmálanna
Signý Leifsdóttir, verkefnastjóri stefnumótunar og innleiðingar hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, en erindi Signýjar nefnist Er hægt að halda í hugsjónir í endalausum málamiðlunum?
Erling Jóhannesson, forseti bandalags íslenskra listamanna og fjallar hann Um lausagöngu listamanna í borgarlandinu
Þá ræða Elsa Jónsdóttir og Björn Loki Björnsson, listamenn og stofnendur sköpunarmiðstöðvarinnar Fúsk í Gufunesi, um Hverfi skapandi greina í Gufunesi
Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal leiðir pallborðsumræður.
Sjá nánar á vef háskólans á bifrost.is