
Um þennan viðburð
Lestrarkósí | Bókaklúbbur
Klúbburinn hittist annnan hvern miðvikudag í Sólheimum kl. 14:30-15:30 og er fyrsti hittingur 14. spetember.
Komdu og kynnstu ævintýraheimi bókanna í notalegri stemningu með lestri, spjalli, grúski og föndri. Í klúbbnum fáum við skemmtilegar heimsóknir frá rithöfundum eða teiknurum þeirra bóka sem við lesum og fáum tækifæri til að kynnast bókunum og sögunum enn frekar. Kúbburinn hentar bæði lestrarhestum og þeim sem finnst notalegt að láta lesa fyrir sig.
Opnað verður fyrir skráningu 25. ágúst
Haustönn 2022 lesum við og vinnum með bókina Nornasaga - Hrekkjavaka eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur. Katla opnar óart galdragátt á hrekkjavökunni.
Ævaforn norn, Gullveig að nafni, smýgur í gegn, uppfull af hefndarþorsta. Þetta er æsispennandi saga með vísunum í norrænu goðafræðina og er bókin ríkulega myndskreytt.
Viðburður á Facebook.
Leiðbeinandi er: Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146