Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 12:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Liðnir viðburðir

Lesið fyrir hund | ATH. Fullbókað!

Laugardagur 9. október 2021

 

Sólheimasafn býður upp á Lesið fyrir hund sem eru lestrarstundir fyrir læs börn á grunnskólaaldri.  Stundirnar eru hugsaðar til þess að auka öryggi barna við lestur,  þau lesa fyrir þjálfaðan hund sem hjálpar þeim að gera lestrarstundina  afslappaða og þægilega og án nokkurrar gagnrýni. Börnin taka með sér bók eða fá lánaða á bókasafninu.

Athugið að lestrarstundirnar eru ekki fyrir börn sem eru hrædd við hunda.    

                                                                                                  

Síðasta lestrarstundin í þessari viðburðaröð verður 13. nóvember kl. 11.30-12.30. 

Skráning er hér fyrir neðan og forföll þarf að boða með fyrirvara. Hver lestrarstund er 20 mínútur. Við munum hafa samband við þátttakendur fyrir sögustundirnar og nánari tímasetning verður þá ákveðin.   

   

Upplýsingar veitir Sigrún Jóna Kristjánsdóttir s. 411-6160

sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is