Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Liðnir viðburðir

Leikur á ljós | Gagnvirkt tónaljósverk

Þriðjudagur 23. ágúst 2022 - Fimmtudagur 25. ágúst 2022

Verið velkomin að upplifa magnað samspil ljóss og hljóma þegar tónlistarfólk fyllir fyrstu hæð Grófarhúss töfrandi tónum. Ýmis hljóðfæri eru tengd við fjölda ljósa og lampa og með hverjum tóni sem leikinn er, tendrast fallegt ljósaspil og tónlistin öðlast nýja vídd.

Auk óvæntra listamanna sem spila fá gestir að spreyta sig og prufa tónaljósverkið með því að spila tónlist eða syngja.

Sölvi Dýrfjörð, hönnuður verksins, er á staðnum til að aðstoða og útskýra hvaða töfrar og tækni eru að verki.

Þriðjudagur 23. ágúst kl. 17-19
Miðvikudagur 24. ágúst kl. 17-19
Fimmtudagur 25. ágúst kl. 11-14

Öll velkomin!