Leikhúskaffi | Á eigin vegum
Leikhúskaffi | Á eigin vegum

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 19:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir

Leikhúskaffi | Á eigin vegum

Þriðjudagur 30. ágúst 2022

Maríanna Clara Lúthersdóttir höfundur leikgerðar og Stefán Jónsson leikstjóri segja gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu Á eigin vegum, leikgerð af samnefndri bók eftir Krístínu Steinsdóttur.

Í kjölfarið verður farið yfir í Borgarleikhúsið þar sem boðið verður upp á stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Í lokin býðst gestum svo 10% afsláttur af miðum á sýninguna.

Borgarbókasafnið Kringlunni og Borgarleikhúsið hafa boðið upp á leikhúskaffi í nokkur ár þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum stuttu fyrir frumsýningu. Á eigin vegum er viðfangsefni fyrsta leikhúskaffis haustins en sýningin verður frumsýnd 16. september. Sigrún Edda Björnsdóttir leikur ekkjuna Sigþrúði sem eltist við jarðarfarir og stundar blaðaburð og garðyrkju af miklum móð. Verkið  byggir á rómaðri skáldsögu metsöluhöfundarins Kristínar Steinsdóttur sem kom út árið 2006. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og hlaut Fjöruverðlaunin árið 2007.

Leikhúskaffið er ókeypis, öll velkomin.

Viðburðurinn á Facebook


Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, deildarbókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204

Bækur og annað efni