
Um þennan viðburð
Leiðsögn | Árbæjarlónið sem var
Sýning Reynis Vilhjálmssonar
Tæming Árbæjarlóns til frambúðar var kveikjan að sýningu Reynis Vilhjálmssonar sem nú sýnir vatnslitamyndir í Borgarbókasafninu Árbæ. Hann mun spjalla við gesti og gangandi þennan fimmtudag á milli kl. 17 og 19 en eins og vænta má er þema hennar Elliðaárnar, stíflan og Árbæjarlónið. Þess má geta að Reynir hefur búið í Árbæ í 53 ár, lengst af í Fagrabæ á bakka Árbæjarlóns. Sýningunni lýkur 30. ágúst.
Reynir er landslagsarkitekt og starfaði að hönnun og skipulagsmálum, allan sinn feril með blýant í hendinni. Dæmi um skipulagsverkefni sem Reynir hefur komið að á löngum ferli eru: Skipulag Árbæjarhverfis, heildarskipulag Elliðaárdals, umhverfi Rafstöðvarinnar, athafnasvæði hestamanna á Víðivöllum. Allt verkefni unnin fyrir og í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Reynir hefur alla tíð teiknað á ferðum sínum um landið og heiminn. Vatnslitaferillinn hófst eftir starfslok, fyrir um 10 árum. Frá árinu 2013 hefur Reynir sótt námskeið í vatnslitun hjá Myndlistaskóla Kópavogs og notið þar tilsagnar margra frábærra kennara.
Reynir er félagsmaður í Vatnslitafélagi Íslands og hefur tekið þátt í samsýningum á vegum þess. Einnig hélt hann einkasýningu árið 2019 í Herhúsinu á Siglufirði.
Árið 2004 var haldið sjónþing í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi tileinkað Reyni og samtímis sýning á verkum hans.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Nánari upplýsingar veita:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Borgarbókasafnið Árbæ | sími 411 6250/892 0326
Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt
reynir@landslag.is | sími 820 5302