Lautarferð með injera á bókasafninu
Þér er boðið! Kíktu í lautarferð á bókasafnið.
Gestgjafinn þessu sinni er Feven Aberam og deilir hún eþjópískum injera-pönnukökum með ýmsum sósum.
Hér er ekkert rok, enginn kuldi, ekkert kjaftæði, bara næs!
Öllum er velkomið að koma með eigið nesti og setjast á grasgræna svæðið. Gott er að kippa með sér teppi eða einhverju mjúku til að tylla sér á undir sólhlífunum.
Við hittumst reglulega í mismunandi hverfum borgarinnar og í hvert skipti er einn hópur í hlutverki gestgjafa. Þau bjóða upp á snarl og stinga upp á áhugaverðum umræðuefnum.
Meira um lautarferðirnar HÉR.
Öll velkomin!
Frekari upplýsingar    
Dögg Sigmarsdóttir    
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka     
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is      
Martyna Karolina Daniel    
Sérfræðingur | Fjölmenningarmál    
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is 
 
         
          