Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:00
Verð
Frítt
Liðnir viðburðir

Kynlíf eins og ég vil hafa það | Kvennanámskeið

Laugardagur 11. mars 2023

Kynfrelsi er eins og að prjóna sitt eigið teppi. Hver þráður og lykkja stendur fyrir nýja reynslu og val og úr verður einstök útkoma samansett úr valdeflingu og sjálfsuppgötvun. 

Opnum á aðgengi að kynfræðslu þar sem hægt er fræðast um kynferðislegri upplifun kvenna á þeirra eigin forsendum. Hvar geta konur rætt málefni sem varða þær sem kynverur? Hvað þýðir að virða eigin mörk? Hvernig könnum við kynlíf út frá eigin þörfum? Kynlíf er stór hluti af okkar menningu, en skiljum við hvað nánd er? Getum við átt í heiðarlegum samræðum um kynlíf? 

Við bjóðum allar konur velkomnar til að fá kynningu á kynfræðslu-námskeiðinu Sex the way I like it undir leiðsögn Angelu Figus.   

Laugardag 11. Mars kl. 11:30-13:00 
Sunnudag 12. Mars kl. 11:30-13:00 
Mánudag 13. Mars kl. 17:00-18:15 

Viðburður fer fram á ensku. 
Þátttaka er ókeypis. 

Viðburður á Facebook

Við vekjum athygli á að á námskeiðinu er fjallað um málefni er tengjast kvenréttindum sem sumum gætu þótt erfitt að ræða. 

Frekari upplýsingar
Angela Figus 
nomorepussi@gmail.com