![Fjölskyldumorgnar - Memm](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/memm_title_image.jpg?itok=sbvwLa_2)
Um þennan viðburð
Krílastundir í Gerðubergi | Memmm Play
Það er gaman að hitta aðra fullorðna með lítil börn, syngja saman, leika og læra.
Í samvinnu við Borgarbókasafnið býður Memmm upp á fjölskyldumorgna, opinn leikskóla Memmm Play, alla miðvikudaga kl. 09-13 á bókasafninu Gerðubergi, efri hæð.
Skráning er óþörf og öll velkomin en stundirnar eru hugsaðar fyrir fjölskyldur með ungabörn og börn á leikskólaaldri.
Heitt á könnunni.
Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi. Þar vinna áhugasamir einstaklingar að því að skapa tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru og gæðastunda á fjölbreyttan hátt.
Komdu og vertu Memmm!
Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu
Fyrir nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi.
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170