
Valgeir Gestsson stýrir samsöng 
Um þennan viðburð
Tími
          13:00 - 13:45
          Verð
        Frítt
        Bókasafn
    
Hópur
    Fyrir öll
      Tungumál
    Íslenska
      Liðnir viðburðir
      Komdu að syngja!
Laugardagur 7. september 2024
      Í haust ætlum við að þenja raddböndin og slá á létta strengi í Spönginni.
Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja! Bókasafnið er jú ekki bara bækur heldur einnig menningarhús, samkomuhús og félagsheimili.
Það er ekkert að óttast þótt þú kunnir ekki textann, hann verður á skjá svo öll geta sungið með.
Komdu að syngja! verður einnig á dagskrá laugardagana 5. október og 2. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild
valgeir.gestsson@reykjavik.is |  411 6100
 
        