Anime klúbbur Borgarbókasafnið
Anime klúbbur Borgarbókasafnsins

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Liðnir viðburðir

Klúbbur | Fyrir alla Anime aðdáendur

Miðvikudagur 18. ágúst 2021

Við erum aftur byrjuð að hittast eftir sumarfrí!!!

Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.

Við hittumst í Gerðubergi og erum alltaf eitthvað að bralla. Það er til dæmis hægt að gera merki, spila borðspil, cosplay, spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!

Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Íslenska myndasögusamfélaginu og Borgarbókasafninu og við leggja okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.

Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en vegna Covid er skráning nauðsynleg. Sjá skráningarform hér að neðan.

Sjá hér upplýsingar sóttvarnarráðstafanir safnsins

Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is