Jólakaffi með Student Refugees Iceland | Torgið
Student Refugees Iceland (SRI) bjóða í jólakaffi fyrir skjólstæðinga sína, sjálfboðaliða og öll þau sem vilja kynnast starfinu.
Boðið verður upp á huggulega stemningu, piparkökur og kaffi.
SRI er verkefni byggt á þeirri hugmynd að menntun teljist til mannréttindar og þar af leiðandi eigi allir rétt að jöfnu aðgengi að námi.
SRI reynir að veita þeim sem hyggjast sækja nám í íslenskum háskóla þær upplýsingar sem þau þurfa og aðstoða flóttafólk við að komast yfir þær hindranir sem kunna að standa í vegi þeirra þegar verið er að sækja nám.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Þátttaka ókeypis.
Frekari upplýsingar um verkefnið SRI má finna hér.
Upplýsingar um viðburðinn og starf SRI veitir:
Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir
erla@studentar.is
Alþjóðafulltrúi Landssamtaka íslenskra stúdenta
Landssamtök íslenskra stúdenta
Ef þú hefur áhuga á að stofna til opins samtals á Torginu, þá hafðu endilega samband við:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is