
Um þennan viðburð
Jazz í hádeginu I Óskalög hlustenda
Borgarbókasafnið Grófinni 24. mars kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi 25. mars kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni 26. mars kl. 13:15-14:00
Áttu þér uppáhaldslag? Langar þig að heyra það á tónleikum Jazz í hádeginu? Við tökum á móti hugmyndum að óskalögum, endilega sendið okkur línu á leifurgunnarsson@gmail.com því í þetta sinn eru það fastagestir sem móta dagskrána.
Flytjendur eru þeir Baldvin Hlynsson, píanó og Leifur Gunnarsson kontrabassa.
Baldvin Hlynsson er píanóleikari og tónlistarmaður sem hefur unnið með ýmsu tónlistarfólki og hljómsveitum á Íslandi (Kristín Sesselja, HipsumHaps, Sturla Atlas, ClubDub, Draumfarir, Salóme Katrín, Salsakommúnan, Herra Hnetusmjör o.f.l.). Auk þess að vinna sem framleiðandi, lagahöfundur og sessionleikari í popptónlist hefur Baldvin einnig B.A. gráðu í jasspíanóleik frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi, hefur gefið út jassplötur og unnið Íslensku tónlistarverðlaunin sem bjartasta vonin í Jass og blús árið 2017.
Nánar um Leif www.lgthonar.com
Tónleikaröðin hefur getið sér gott orð undanfarin ár og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir
Nánari upplýsingar:
Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is