
Um þennan viðburð
Jazz í hádeginu I Bræður velja sín uppáhalds
Borgarbókasafninu Grófinni 6. febrúar kl. 12.15 - 13.00
Borgarbókasafninu Gerðubergi 7. febrúar kl. 12.15 - 13.00
Borgarbókasafninu Spönginni 8. febrúar 13.15 - 14.00
Bræðurna Óskar og Ómar Guðjónssyni þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum, en þeir eiga að baki langan og farsælan tónlistarferil. Þeir hafa báðir verið áberandi á íslensku tónlistarsenunni og einskorða sig síður en svo við jazzmúsík. Þeir verða gestir á næstu tónleikum tónleikaraðarinnar Jazz í hádeginu og mun hvor um sig velja nokkra af sínum uppáhalds jazz standördum til að flytja. Eins og vant er leikur Leifur Gunnarsson með á kontrabassa.
Óskar Guðjónsson er fæddur árið 1974 og útskrifaðist úr tónlistarskóla FÍH árið 1997 með ágætis einkunn og hæstu einkunn sem skólinn hefur gefið.
Óskar hefur á 29 ára ferli sínum sem atvinnutónlistarmaður spilað á yfir 350 tónleikum í 40 löndum og fimm heimsálfum. Hann hefur gefið út 19 hljómplötur með eigin tónlist eða útsetningum, undir eigin nafni eða sem hluti af hljómsveit. Að auki hefur Óskar spilað inn á yfir hundrað plötur sem session spilari hjá hinum ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum.
Listi samstarfsmanna samanstendur meðal annars af: Mezzoforte, Jim Black, Sören Dahl Jeppesen, Trygve Seim, Skúli Sigurðsson, Sigurður Flosason, Hjálmar, Samúel Samúelsson Big Band, Stórsveit Reykjavíkur, Tómas R. Einarsson svo nokkrir séu nefndir.
Óskar hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin 10 sinnum og nú síðast fyrir lagið Magnús Trygvason Eliassen af plötunni ADHD 6. Þar á undan fyrir plötuna ADHD með hljómsveitinni ADHD árið 2010 og aftur fyrir The Box Tree árið 2012 sem er samstarfsverkefni þeirra Óskars og Skúla Sverrissonar.
Ómar Guðjónsson útskrifaðist úr FÍH tónlistarskólanum árið 2003. Ómar starfar sem hljómlistarmaður og upptökustjóri, meðal hljómsveita sem hann vinnur með er: ADHD, Drangar, Jónasi Sig og Ritvélar framtíðarinnar/Milda hjartað, Latínsveit Tómasar R. Einarssonar, Valdimari Guðmunds, Veireinsheim, Roforofo og SJS big band.
Ómar hefur gefið út 4 hljómplötur undir eigin nafni og komið að mörgum tugum þ.á.m 7 ADHD hljómplötum. Honum hefur hlotnast 6 verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir plötur ársins, hljómleika ársins, lag ársins og nú síðast upptökustjóri ársins.
Jazz í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið hefur staðið fyrir síðan í september 2014. Tónleikarnir eru einu sinni í mánuði og eru fluttir í Grófinni, Gerðubergi og Spönginni.
Allir helstu jazzarar á Íslandi haft viðkomu á söfnunum og notið undirleiks Leifs Gunnarssonar kontrabassaleikara sem einnig er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar.
Tónleikaröðin hefur frá upphafi fengið góðar viðtökur og orðin fastur liður hjá mörgum sem kjósa að eyða hádeginu á safninu og hlusta á ljúfa tóna.
Markmið tónleikaraðarinnar Jazz í hádeginu er fyrst og fremst að færa jazzinn út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hans í eigin nærumhverfi.
Viðburður á Facebook / Info in English on Facebook
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
S: 4116114