Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

Hvernig ertu? | Sýningarleiðsögn

Föstudagur 10. júní 2022

Stefnumót við Prinsinn

Svavar Pétur Eysteinsson, einnig þekktur undir listamannsnafninu Prins Póló, verður með leiðsögn um einkasýningu sína Hvernig ertu? í Gerðubergi og jafnvel læða að sögum af bernskubrekum úr Breiðholtinu.

Á sýningunni blandar Svavar saman eigin tónverkum, myndlist og ljósmyndum, en í verkum sínum sækir Prinsinn oft innblástur í "sjoppulegan" hversdagsleikann, með litríkri upphafningu og húmor að leiðarljósi.

Hvernig ertu? var opnuð á neðri hæð Borgarbókasafnsins Gerðubergi við glimrandi góðar undirtektir laugardaginn 28. maí síðastliðinn og hefur vakið verðskuldaða athygli, en sýningin stendur yfir til 28. ágúst.

Öll velkomin.

Frekari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir
deildarstjóri í Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is