Fundur fólksins

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 15:45
Verð
Frítt
Staður
Norræna húsið
Fundur fólksins
Sæmundargata 11
101 Reykjavík
Liðnir viðburðir

Hvernig er opið samfélagsrými? | Bókasafnið á Fundi fólksins

Föstudagur 3. september 2021

Þarftu að komast út, nennir ekki að vera heima, í vinnunni eða skólanum? En hvert ferðu og hvar er opið?
Á hvaða stöðum finnst okkur gaman að sýna okkur og sjá aðra, prófa okkur áfram með eitthvað nýtt eða sitja í ró?

Hlutverk Borgarbókasafnsins er að deila sögum, þekkingu og menningu, safnið er vettvangur til að skapa tengsl, samtal og upplifun meðal borgarbúa.
Vissir þú að þú getur komist í allskonar forrit og tækni á safninu?

Borgarbókasafnið er á Fundi fólksins til að kynnast uppáhaldsstöðum notenda og hvernig bókasafnið gæti orðið einn af þeim.
Hvar getum við hagað okkur "eins og heima hjá okkur"?
Við hlökkum til að kynnast því hvað notendum langar að geta gert eða skapað á safninu.

 

Viðburðurinn á Facebook

 

Hlökkum til að sjá ykkur í Alvar sal í Norræna húsinu.
Frekari upplýsingar um Fund fólksins má finna hér.

 

Frekar upplýsingar um viðburðinn veitir
Dögg Sigmarsdóttir | Verkefnastjóri borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is