
Um þennan viðburð
Hver er miðborgin okkar?
Tónlistarkonurnar Unnur Sara Eldjárn og Rebekka Sif Stefánsdóttir takast á við þessa spurningu og fleira með líflegum frásögnum af sögu miðbæjar Reykjavíkur, í bland við tónlist og virka þátttöku fjörugra grunnskólakrakka!
Viðburðurinn fer fram á 1. hæð á Borgarbókasafninu Grófinni.
Við ætlum að skoða hvernig miðborgin okkar varð til, hvað einkenndi lífið þar í gamla daga og hvernig við sjáum hana fyrir okkur í framtíðinni.
Að fyrirlestri loknum tekur við fjársjóðsleit utandyra í nánasta umhverfi Borgarbókasafnsins. Allir sem taka þátt í að finna fjársjóðinn fá verðlaun!
Reynt verður að skipta upp í hópa þannig að það séu einhver eldri börn í hópnum sem geta aðstoðað þau yngri í fjársjóðsleitinni. Foreldrum og öðrum er einnig velkomið að taka þátt.
Viðburðurinn er styrktur af Miðborgarsjóði Reykjavíkur.
Aðgangur er ókeypis og sérstaklega hugsaður fyrir börn á aldrinum 8 - 12 ára.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, deildarbókavörður
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is