
litrík hús úr endurunnum efnum
Um þennan viðburð
Tími
14:15
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir
Húsabyggð 2020
Fimmtudagur 4. júní 2020 - Föstudagur 31. júlí 2020
Börnin á frístundaheimilinu Kastala í Húsaskóla hafa í vetur búið til falleg hús úr ýmiskonar efniviði sem þau hafa safnað saman og endurnýtt.
Húsin eru í grunninn búin til úr plastílátum, pappahólkum og öðru sem til fellur og síðan þekja börnin með pappamassa. Þau mála svo húsin og skreyta að vild og má glögglega sjá að persónulegur smekkur hvers barns hefur fengið að njóta sín til fullnustu. Húsin eru sem ævintýri, litrík og nostursamlega unnin.
Signý Björk Ólafsdóttir leiðbeinandi hefur stýrt verkefninu með aðstoð Hildar Hang Ottósdóttur.
Allir velkomnir.