Bækur sem tilnefndar eru til Viðurkenningar Hagþenkis
Kynning á verkunum sem tilnefnd eru til Viðurkenningar Hagþenkis

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:30
Verð
Frítt
Liðnir viðburðir

Höfundar kynna verk sín | Framúrskarandi rit

Laugardagur 15. febrúar 2020

Tilnefnd rit til Viðurkenningar Hagþenkis verða kynnt í Borgarbókasafninu, menningarhúsi Grófinni laugardaginn 15. febrúar og hefst dagskrá kl. 13:00.

Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Viðurkenningarráð Hagþenkis, skipað fimm félagsmönnum af ólíkum fræðasviðum og til tveggja ára í senn tilnefnir 10 rit og höfunda þeirra. Viðurkenning Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2019 verður veitt í byrjun mars og felst í heiðursskjali og 1.250.000 kr.

Viðburður á Facebook

Dagskráin er eftirfarandi:

Kl. 13:00 13:10

Andri Snær Magnason

Um tímann og vatnið. Mál og menning.

Einstaklega vel skrifuð og áhrifarík bók sem fléttar umfjöllun um loftslagsbreytingar af mannavöldum við persónulega reynslu, fræði og alþjóðlega umræðu á frumlegan hátt.

 

Kl. 13:10 – 13:20

Árni Einarsson

Tíminn sefur - Fornaldargarðarnir miklu á Íslandi. Mál og menning.

Í máli og glæsilegum myndum er sjónum beint að lítt þekktum leyndardómi Íslandssögunnar, fornaldargörðunum miklu, á ljósan og lifandi hátt.

 

Kl: 13:20-13:30

Árni Heimir Ingólfsson

Tónlist liðinna alda - Íslensk handrit 1100–1800. Crymogea.

Falleg og vönduð bók sem veitir innsýn í forna tónlist Íslendinga í máli, myndum og tónum og breytir viðteknum hugmyndum um söngleysi þjóðar fyrr á öldum.

 

Kl. 13:30-13:40

Björk Ingimundardóttir

Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I–II. Þjóðskjalasafn Íslands.

Yfirgripsmikið uppflettirit ásamt kortum sem auðveldar yfirsýn yfir sögu landsins og á eftir að nýtast í margvíslegum rannsóknum um langan aldur. Sagnfræðilegt stórvirki.

 

Kl. 13:40-13:50

Haukur Arnþórsson

Um Alþingi - Hver kennir kennaranum? Haukur Arnþórsson.

Frumleg og beinskeytt greining á gögnum um störf löggjafans. Athyglisvert framlag til gagnrýninnar umræðu um stjórnmál á Íslandi.

 

Kl. 14:00 – 14:10

Margrét Tryggvadóttir

Kjarval - Málarinn sem fór sínar eigin leiðir. Iðunn.

Í bókinni er saga manns og aldarfars tvinnuð saman við myndlist af sérstakri næmni sem höfðar til fólks á öllum aldri.

 

Kl. 14:10-14:20

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Ný menning í öldrunarþjónustu. Ömmuhús.

Tímabær hugvekja um öldrunarþjónustu með manngildi í fyrirrúmi, skrifuð af ástríðu og þekkingu.

 

14:20-14:30

Unnur Birna Karlsdóttir

Öræfahjörðin - Saga hreindýra á Íslandi. Sögufélag.

Vandað og aðgengilegt sagnfræðirit um einkennisdýr austuröræfanna, einstaka sögu þeirra og samband við þjóðina.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Friðbjörg Ingimarsdóttir, framkvæmdastýra Hagþenkis
netfang: hagthenkir@hagthenkir.is
símar 5519599 / 8689725  

Bækur og annað efni