Liðnir viðburðir
Hinsegin dagar | DragStund Starínu
Sunnudagur 7. ágúst 2022
Verið velkomin á líflega sögustund með Starínu í Grófinni þar sem hinseginleikinn er í forgrunni. Starína les sögur fyrir börnin þar sem hinsegin sögupersónur koma fyrir, hvetur til spurninga og fagnar fjölbreytileikanum.
Eftir lesturinn geta börnin heilsað upp á Starínu og fengið mynd með henni.
Starína verður með þrjár sögustundir á Borgarbókasafninu á Hinsegin dögum:
Í Gerðubergi: Þriðjudaginn 2. ágúst, kl. 14:00-14:30
Í Úlfarsárdal: Föstudagskvöldið 5. ágúst, kl. 19:00-19:30 (Sögustund á náttfötunum)
Í Grófinni: Sunnudaginn 7. ágúst, kl. 15:00-15:30