
Um þennan viðburð
Tími
          13:30 - 14:30
          Verð
        Frítt
        Bókasafn
    
Hópur
    Fullorðnir
      Liðnir viðburðir
      Hannyrðastund í Spönginni
Fimmtudagur 7. mars 2024
      Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?
Á fimmtudögum kl. 13:30-14:30 er hannyrðastund í Spönginni. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í blágrænu sófunum á annarri hæð.
Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap.
Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.
Viðburðurinn á Facebook.
Sjá nánari upplýsingar um hannyrðastundir á söfnunum okkar og tillögur að lesefni. 
Nánari upplýsingar: 
spongin@borgarbokasafn.is | 411 6230
 
        