Liðnir viðburðir
Handverkskaffi | Skikkjugerð
Sunnudagur 27. febrúar 2022
Öskudagurinn er í nánd og því er rétti tíminn til að sauma búninga. Í Borgarbókasafninu í Árbæ eru saumavélar og góð aðstaða til að sauma. Við bjóðum fullorðnum og ungmennum að koma og sauma skikkju fyrir öskudaginn eða annað gott tilefni.
Efni er hægt að fá á staðnum og svo má líka koma með eigið efni. Nóg er af tvinna í öllum litum, skærum og öðru sem þarf.
Leiðbeinendur eru Elínborg Ágústsdóttir sveinn í kjólasaumi og Andzelina Kusowska Sigurðsson klæðskeri.
Verið velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
411 6250