Um þennan viðburð
Tími
10:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Liðnir viðburðir
FULLBÓKAÐ! Sumarsmiðja | Borðspilahönnun
Mánudagur 12. júní 2023 - Föstudagur 16. júní 2023
Allir geta hannað spil með rétta hugarfarinu, þar með talið þú!
Borðspil eru frábær afþreying með vinum og fjölskyldu.
Í þessari smiðju munum við fyrst og fremst spila okkur til skemmtunar og læra ný spil. Þar að auki munum við gera æfingar sem byggja upp grunnþekkingu í leikjahönnun, spila spil okkur til innblásturs og að lokum prófa að hanna okkar eigin kortaspil.
Leiðbeinandi smiðjunnar, Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, er menntaður leikjahönnuður og með einstaka þekkingu á borðspilum vegna vinnu sinnar til margra ára í Spilavinum.
Skráning er hafin á sumar.vala.is.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is | 411-6160 |