
Um þennan viðburð
FULLBÓKAÐ: „Live Coding“ tónlistarforritun fyrir byrjendur með Strudel
FULLBÓKAÐ – Smiðjan er lokuð fyrir bókanir.
Það má senda skilaboð á karl.james.pestka@reykjavik.is ef þú vilt vera á biðlistanum.
„Live Coding“ eða núritun er skapandi nálgun á forritun þar sem flytjandinn býr til tónlist eða myndlist með því að skrifa, breyta og meðhöndla kóða í rauntíma, venjulega fyrir framan áhorfendur. Á síðustu áratugum hefur þessi iðkun orðið að kraftmikilli skapandi listgrein á menningar- og tæknisviðum, meðal annars í tónlist, myndlist og tölvunarfræði. Í núritun fer sköpunin og tónsmíðin fram í rauntíma. Flytjandinn getur haft áhrif á flutninginn með myndefni, hreyfingu eða hverju sem er sem hægt er að stjórna. Kóðanum er oft varpað á skjá þar sem áhorfendur geta fylgst með.
Í þessari smiðju fá þátttakendur praktíska reynslu í að vinna með vinsælt Live Coding vafraforrit sem heitir Strudel. Smiðjunni verður stýrt af Jack Armitage og Sigríði Birnu Matthíasdóttur frá Intelligent Instruments Lab í LHÍ.
Smiðjan er ætluð 16 ára og eldri, óháð bakgrunni, ekki er nauðsynlegt að kunna að forrita. Athugið að smiðjan fer fram á ensku og er pláss fyrir 12 þátttakendur.
Æskilegast er að koma með sína eigin tölvu, en einhverjar tölvur verða í boði á staðnum.
Í lok smiðjunnar er þeim sem hafa áhuga boðið að taka þátt í stofnun nýs vettvangs, „Live Coding Meetup“, þar sem skapandi forritarar hittast og vinna að hinum ýmsu verkefnum og samstarfi í opnu og hvetjandi samtali og læra um leið um nýja tækni og starfshætti. „Live Coding Meetup“ fer af stað í haust á Borgarbókasafninu - skemmtilegt tækifæri til að deila þekkingu sinni og að kafa enn dýpra í Strudel og önnur viðfangsefni tengdum núritun.
Dagskrá smiðjunnar er eftirfarandi:
- 12:00-15:30: Kynnumst "Live Coding" með Strudel/TidalCycles
- 15:30-16:00: Stofnfundur „Live Coding Meetup“
Nánari upplýsingar um Live Coding:
- TOPLAP https://toplap.org
- Algorave https://algorave.com
- Strudel og TidalCycles https://strudel.tidalcycles.org
Nánari upplýsingar um smiðjunni:
Karl James Pestka (hann)
Verkefnastjóri — Verkstæðin og skapandi tækni
karl.james.pestka@reykjavik.is | +354 665 0898