Í bókinni „Arfur Stiegs Larsson“ er reifuð ákveðin kenning um lausn morðmálsins.

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:30
Verð
Frítt
Liðnir viðburðir

FRESTAÐ Umræðufundur | Morðið á Olof Palme

Þriðjudagur 17. mars 2020

Vinsamlegast athugið að þessum viðburði hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Norræna félagið í Reykjavík býður til umræðufundar í tilefni þess að fréttir hafa borist af því að gátan um morðið á Olof Palme muni hugsanlega leysast á komandi mánuðum. Tilefnið er einnig útkoma bókarinnar „Arfur Stiegs Larsson“ í íslenskri þýðingu þar sem reifuð er ákveðin kenning um lausn morðmálsins.
 

  • Vera Illugadóttir útvarpskona mun flytja erindi um Palme-morðið og morðrannsóknina.
  • Páll Valsson, annar þýðandi bókarinnar „Arfur Stiegs Larsson“, mun ræða þá kenningu sem sett er fram í bókinni.
  • Håkan Juholt, sendiherra Svía á Íslandi, mun ræða kynni sín af Olof Palme og áhrif hans á sænskt þjóðlíf.

Í kjölfar fylgja umræður.

Fundarstjóri er Sigurður Ólafsson, stjórnarmaður í Norræna félaginu í Reykjavík.

Fundurinn er haldinn í samvinnu við Borgarbókasafnið og sænska sendiráðið í Reykjavík.

Þeir sem ekki eru félagsmenn í Norræna félaginu í Reykjavík, geta skráð sig í félagið hér.