
Um þennan viðburð
FRESTAÐ Spilum og spjöllum á íslensku
Vinsamlegast athugið að þessum viðburði hefur verið frestað til 11. maí n.k.
Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra - þátttaka er ókeypis. Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum orðaleiki, spjöllum og skemmtum okkur vel.
Við eigum spil fyrir öll þrep, leiðbeinendur aðstoða. Öll geta verið með, þótt þau tali ekki mikla íslensku!
Leiðbeinandinn sem tekur á móti þátttakendum í Gerðubergi heitir Sigurður Hermannsson. Hann er málvísindamaður með brennandi áhuga á tungumálum og kennir íslensku sem annað mál. Sigurður (Siggi) stofnaði vefsíðuna https://www.icelandicmadeeasier.com til að allir sem vilja læra íslensku hefðu ókeypis aðgang að efni og tækjum. Þegar Siggi er ekki að kenna íslensku á bókasafninu eða í einkatímum heima hjá sér er hann líklegast að vinna í íslenskri orðabók wordreference.com í sjálfboðastarfi.
Vegna Covid-takmarkana eru gestir vinsamlegast beðnir um að skrá sig á viðburðinn hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is