FRESTAÐ Leshringurinn 101 | Glæpur við fæðingu
Vinsamlegast athugið að þessum auka leshring hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Skráning er á alla viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.
Sjá nánar HÉR.
• Staðsetning viðburðar: Torgið, á jarðhæð
• Hámarksfjöldi gesta: 12 manns
• Boðið er upp á kaffi.
Leshringurinn 101 hittist í Grófinni annan þriðjudag í mánuði kl. 17:30-18:30. Í leshringnum viljum við skapa huggulega stemningu þar sem við komum saman, sötrum kaffi og spjöllum um bækur.
Í októberhringnum verður rætt um sjálfsævisögu uppistandarans og þáttagerðarstjórnandans Trevor Noah en titill bókar hans, Glæpur við fæðingu, vísar til þess að hann er af blönduðum uppruna, móðirin af Xhosa-ættbálknum og faðirinn Svisslendingur en á tímum aðskilnaðarstefnunnar var refsivert að eiga náið samneyti við fólk af af öðrum kynþætti.
Lesning fyrir næsta hring:
8. desember | Saga býflugnanna eftir Maja Lunde
Leshringurinn er opinn! Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á Guðrúnu Dísi Jónatansdóttur eða einfaldlega mætið á svæðið.
Við hvetjum góðvini Borgarbókasafnsins til að skrá sig í Bókaklúbbinn okkar á Facebook! Þar deilum við ýmsum bókmenntatengdum viðburðum og oft skapast líflegar umræður um alls kyns bókmenntir.
HÉR er að finna almennar upplýsingar um leshringi Borgarbókasafnsins...
Umsjón: Guðrún Dís Jónatansdóttir
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is